Persónuvernd

Persónuvernd og vafrakökur

Síðast uppfært 27. október 2026

Hver ber ábyrgð

Príor hugbúnaður ehf., kt. 591121-1030, ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga á vefsíðunni prior.is. Hafðu samband á prior@prior.is eða í síma 772 1887 ef þú hefur spurningar.

Þessi stefna gildir um vefsíðuna prior.is. Hún gildir ekki um vinnslu persónuupplýsinga í sjálfu Príor kerfinu (app.prior.is). Hafðu samband ef þú vilt upplýsingar um hana.

Hvaða upplýsingar við vinnum og hvers vegna

  • Hafa samband. Þegar þú sendir okkur skilaboð vinnum við nafn þitt, netfang og skilaboðin sjálf. Þau eru send í tölvupósti til okkar í gegnum tölvupóstþjónustuna Resend og eru eingöngu notuð til að svara erindi þínu. Vinnslan byggir á lögmætum hagsmunum okkar af því að svara fyrirspurnum.
  • Heimsóknartölfræði. Við notum Vercel Web Analytics til að telja heimsóknir og síðuflettingar. Hún notar ekki vafrakökur. Vefsíðan er hýst hjá Vercel.
  • Mælingar á auglýsingum. Aðeins ef þú samþykkir, sjá næsta kafla.

Vafrakökur og mælingar á auglýsingum

Við notum Meta Pixel (Meta Platforms Ireland Limited) og Google Ads merki í gegnum Google Tag Manager (Google Ireland Limited) til að mæla hvaða auglýsingar leiða til heimsókna og nýskráninga. Þessi forrit hlaðast aðeins ef þú samþykkir og engin samskipti eru við Meta eða Google áður en þú hefur valið. Ef þú hafnar hlaðast þau ekki.

KakaFráTilgangurLíftími
prior_consentPríorGeymir val þitt um vafrakökur180 dagar
_fbp, _fbcMetaMæla árangur auglýsinga á Facebook og InstagramAllt að 90 dagar
_gcl_au, _gcl_awGoogleMæla árangur auglýsinga á GoogleAllt að 90 dagar

Google getur sett fleiri kökur í tengslum við auglýsingaþjónustu sína.

Sjálfvirk söfnun Meta Pixel. Auk þeirra atburða sem við sendum sjálf (heimsókn á síðu og smell á „Stofna aðgang“) getur Meta Pixel safnað upplýsingum sjálfkrafa: smellum á hnappa og tengla á síðunni (texta hnappsins og áfangastað), upplýsingum um síðuna (titil, lýsingu og leitarorð) og hvort eyðublöð eru á henni. IP-tala og upplýsingar um vafrann þinn fylgja öllum atburðum frá vafranum. Ef þú fyllir út eyðublað á síðunni, t.d. „Hafa samband“, getur Meta Pixel einnig greint netfang eða símanúmer í því og sent til Meta umbreytt með SHA-256 hakkafalli (sjálfvirk pörun, „automatic advanced matching“) svo Meta geti tengt atburðinn við aðgang. Þetta gerist aðeins ef þú hefur samþykkt vafrakökur.

Mæling frá netþjóni. Ef þú hefur samþykkt og stofnar aðgang að Príor sendum við Meta upplýsingar um nýskráninguna frá netþjóni okkar (Meta Conversions API): netfang, símanúmer, fornafn og eftirnafn (umbreytt með SHA-256 hakkafalli áður en þau eru send), land, IP-tölu, upplýsingar um vafrann þinn og auðkenni Meta kakanna. Þetta er ekki gert nema þú hafir samþykkt.

Vinnslan byggir á samþykki þínu. Þú getur afturkallað það hvenær sem er án þess að það hafi áhrif á lögmæti vinnslu fram að afturkölluninni. Þegar þú hafnar eftir að hafa samþykkt eru rakningarkökur hreinsaðar og síðan endurhlaðin.

Miðlun til þriðju aðila

Upplýsingar sem fara til Meta, Google, Resend og Vercel geta verið unnar utan Evrópska efnahagssvæðisins, t.d. í Bandaríkjunum. Þessir aðilar vinna samkvæmt eigin persónuverndarstefnum: Meta, Google, Resend og Vercel.

Varðveisla

Við geymum persónuupplýsingar ekki lengur en nauðsynlegt er vegna tilgangs vinnslunnar. Líftími vafrakaka kemur fram í töflunni hér að ofan.

Réttindi þín

Þú átt rétt á aðgangi að upplýsingum um þig, leiðréttingu, eyðingu, takmörkun á vinnslu, flutningi gagna og rétt til að andmæla vinnslu. Sendu beiðni á prior@prior.is. Þú getur einnig kvartað til Persónuverndar ef þú telur vinnslu okkar ekki samræmast lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.

Breytingar

Við getum uppfært þessa stefnu. Nýjasta útgáfan er alltaf birt hér og dagsetning síðustu uppfærslu kemur fram efst.

Príor

Tímaskráning og verkbókhald fyrir verktaka.

Kennitala
591121-1030
Bankanr.
0133-26-004688
VSK nr.
143478

© 2021–2026 Príor hugbúnaður ehf. Allur réttur áskilinn.

Persónuvernd